Einelti og samskiptavandi
Mikilvægt er að bregðast strax við ef grunnur vaknar um einelti eða samskiptavanda hjá börnum og ungmennum.
Ef samskiptavandi er fyrir hendi er mikilvægt að foreldrar og kennari ræði saman um vandann og átti sig á umfang og eðli hans. Einnig er mikilvægt að rætt sé við þau börn eða ungmenni sem að málinu koma og fá fram þeirra lýsingar og upplifun til að hægt sé að móta viðbrögð í samræmi við upplifun þess.
Hér má finna leiðbeiningar um hvernig foreldrar geta brugðist við ef grunnur er um að barn eða ungmenni sé að lenda í einelti eða samskiptavanda í skólanum.
Á heimasíðu fagráðs eineltismála og hjá Samskiptaráðgjafa ÍSÍ er hægt að nálgast ítarlegar upplýsingar um verklag og leiðir sem gott er að styðjast við þegar takast þarf á við samskiptavanda hjá ungmennum.
Hér fyrir neðan má nálgast upplýsingar um einelti og vinnslu eineltismála:
Aðrar greinar
Þjónustuúrræði fyrir börn og ungmenni frá Grindavík
Hér fyrir neðan má nálgast upplýsingar um fjölbreytt þjónustuúrræði fyrir börn og ungmenni sem geta ...
Lesa grein