Skólafundir – Teymisfundir

Skólafundir – Teymisfundir

Skólafundir – Teymisfundir
Foreldrar og starfsfólk skóla funda gjarnan í tengslum við skólamál nemenda. Þar er gjarnan fari yfir stöðuna í skólanum, námsframvindu, samskipti, almenna líðan og annað sem tengist nemandanum. Þetta eru oft mjög mikilvægir og gagnlegir fundir þar sem æskilegt er að áherslan sé á lausnir og leiðir til að koma á móts við þarfir nemandans og finna leiðir til að finna þeim uppbyggilegan farveg. Hér eru nokkrir punktar sem hægt er að hafa til hliðsjónar til að slíkir fundir verði markvissir og gagnlegir fyrir alla aðila.  

Hverjir eru boðaðir á fundinn? 
Mikilvægt er að foreldrar og þeir sem hafa með mál nemandans að gera í skólanum mæti á fundinn svo hægt sé að kortleggja helstu atriðin sem huga þarf að og svo hægt sé að móta raunhæfar lausnir og rétt viðbrögð við þeim aðstæðum sem um ræðir.  

Dagskrá skipulag 
Gott skipulag á fundi felur í sér að í upphafi fundar þá kynna sig allir og skipaður er fundarritari sem skráir niður helstu umræðuefni og ákvarðanir. Einnig þarf í upphafi fundar að vera skýrt hver áherslan á fundinum er. 

Fundargerð 
Mikilvægt er að starfsmaður skólans taki að sér að halda fundargerð um hvað fer fram á fundinum. Í slíkri fundargerð er æskilegt að það komi fram hver tekur hvaða verkefni að sér og hvert markmið inngripa eigi að vera. Mikilvægt er að foreldar fái eintak af fundargerð í lok fundar eða innan nokkra daga frá fundi. Í þessu samhengi er líka gagnlegt að byrja næsta fund á því að rifja upp síðustu fundargerð og fara yfir hvernig hefur gengið að koma ákvörðunum í framkvæmd.